9.5.2012
Zoe Lyons - Uppistand á Hinsegin dögum
Norðurljós – 8. ágúst 2012 kl. 21:00
miðaverð: 2000 kr.
Kaupa miða
Einn af hápunktum Hinsegin daga í sumar er heimsókn hinnar óborganlegu Zoe Lyons frá Bretlandi sem skemmtir í Norðurljósum í Hörpu miðvikudagskvöldið 8. ágúst. Á undanförnum árum hefur Zoe ferðast víða um heim og hvarvetna slegið í gegn. Þá er uppistand hennar löngu orðið einn af eftirsóttustu viðburðum Edinburgh Fringe Festival og grín hennar í bresku útvarpi og sjónvarpi nýtur ómældra vinsælda. Á liðnu ári hlaut hún eina mestu viðurkenningu sem breskum skemmtikröftum hlotnast, London Comedy Award.
„Meinfýsni hennar er hrein snilld ... fáar stjörnur hafa þotið jafn hratt og Zoe upp á stjörnuhimin grínistanna. Krafturinn í henni dugar til að kaffæra hvern þann áhorfanda í salnum sem veður í þeirri villu að kvenfólk sé ekki fyndið!“
The Guardian
„Zoe Lyons lýsti upp sviðið í klukkutíma með ósviknum kvikindisskap svo að salurinn lá gjörsamlega í hlátri. Ég efast um að ég hafi nokkurn tíma í lífinu hlegið annað eins að uppistandi.“
Edinburghguide.com
7.5.2012
Á hinsegin nótum - Lögin úr leikhúsinu
Norðurljós – 10. ágúst 2012 kl. 20:30 Miðaverðerð: 2000 kr.
Kaupa miða
Á hátíð Hinsegin daga í Reykjavík 2011 var efnt til klassískra tónleika í Hörpu undir yfirskriftinni „Á hinsegin nótum“ við húsfylli og mikinn fögnuð gesta. Á Hinsegin dögum í sumar verður athyglinni beint að hinsegin söngleikja- og djasstónskáldum. Kristjana Stefánsdóttir syngur lög eftir Cole Porter, Leonard Bernstein, Stephen Sondheim, Jerry Herman, Rufus Wainwright og fleiri. Kjartan Valdemarsson leikur á píanó og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa, en Árni Heimir Ingólfsson segir hinsegin sögur af tónskáldunum og sköpunarverkum þeirra.
Meira....
5.4.2012
Aðalfundur Hinsegin daga - Undirbúningur hátíðahalda sumarsins í fullum gangi
Aðalfundur Hinsegin daga í Reykjavík var haldinn miðvikudaginn 4. apríl sl. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf. Formaður flutti skýrslu stjórnar fyrir árið 2011 og má lesa hana hér í viðhengi. Gjaldkeri lagði fram reikninga liðins árs, en síðan var fjallað um lagabreytingar. Skv. samþykktum aðalfundarins er nú kosið árlega um öll embætti í stjórn til eins árs, en áður var stjórnarfólk kosið til tveggja ára í senn. Að því loknu fór fram stjórnarkjör en í stjórn voru kjörin til eins árs: Eva María Þórarinsdóttir Lange formaður, Kristín Sævarsdóttir ritari, Jón Sævar Baldvinsson gjaldkeri, Þorvaldur Kristinsson varaformaður og Guðni Kristinsson meðstjórnandi.
Undirbúningur hátíðahaldanna í ágúst í sumar hófst um síðustu áramót og það fólk sem vill leggja stjórn og samstarfsnefnd lið er hvatt til að hafa samband við formann hið fyrsta, en hópstarfið hefst að vanda á næstu vikum. Dagskrárliðir hátíðarinnar er kynntir hér á vefsíðunni eftir því sem þeir mótast og einnig á Facebook-síðu Hinsegin daga.
Ársskýrsla Hinsegin daga í Reykjavík 2011
8.2.2012
Skemmtikraftar á Hinsegin dögum
Á hverju ári kemur fram fjöldi skemmtikrafta á Hinsegin dögum. Þar er bæði um að ræða listafólk sem sækir um að fá að koma fram á hátíðinni og listafólk sem Hinsegin dagar óska eftir að komi fram.
Allir sem koma fram á Hinsegin dögum gera það án endurgjalds. Hinsegin dagar greiða skemmtikröftum ekki fyrir að koma fram, enda eru Hinsegin dagar sjálfboðaliðasamtök,
Þeir sem vilja koma fram á Hinsegin dögum þurfa að sækja um það með því að fylla út umsóknareyðublað og senda það okkur í síðasta lagi fyrir 1. mars ár hvert.
Vistaðu umsóknareyðublaðið í tölvuna hjá þér, gefðu því nafnið á atriði þínu, fylltu það út og sendu okkur.








